Íslenskuhornið
  • Einkakennsla
    • Fyrir útlendinga
  • Prófarkalestur
  • Tenglar
  • Um mig
  • Hafðu samband
  • English
    • Private Tutoring
    • Resources
    • About Me
    • Contact Me

Prófarkalestur

Ert þú að fara að skrifa mikilvæga ritgerð eða aðra ritsmíð? Vantar þig aðstoð við textaskrifin? Hvort sem þú þarft aðstoð við að útrýma innsláttarvillum, málvillum eða ambögum, er ég rétta manneskjan fyrir þig. Þú einbeitir þér að því að koma skilaboðunum á framfæri - ég sé til þess að þau séu á vönduðu máli.

Ég hef einnig tekið að mér að leiðbeina fólki við textasmíðar, þannig að textinn verði þægilegri og auðlesnari. Til að halda athygli lesandans, þarf textinn að vera beinskeyttur og markviss og þar get ég komið að liði.
Picture
Meðmæli

Einar Ágúst Einarsson, BA í viðskiptafræði:

10/10 ⭐️
Ég fann vefsíðuna hennar Hólmfríðar deginum fyrir skil og hún bjargaði mér alveg. Frábær prófarkalestur, snögglega afgreitt og einnig fékk ég mjög góðar leiðbeiningar um hvernig ég ætti að raða köflunum í ritgerðinni. Ég mæli hiklaust með henni! 

Einar Ágúst Einarsson, maí 2021.

Selma Jónasdóttir, grunnskólakennari

Eftir ábendingu fékk ég Hólmfríði Gestsdóttur til þess að prófarkalesa meistararitgerð (M.Ed.) sem ég nýverið lauk við. Ég hafði samband við hana með stuttum fyrirvara þar sem ég hafði ekki ætlað mér endilega að láta prófarkalesa ritgerðina. Hólmfríður brást skjótt við beiðni minni og vann verkið hratt og ákaflega vel og af mikilli nákvæmni. Ábendingar og tillögur hennar voru faglegar og bættu textann og ég var ákaflega sátt við hennar framlag. Allar tímasetningar stóðust. Hólmfríður Gestsdóttir fær mín bestu meðmæli. 

Selma Jónasdóttir, febrúar 2021.
​​

Katrín Magnúsdóttir, kennari (M. Ed. í kennslufræði):

Hófí las yfir meistararitgerðina mína veturinn 2019-2020. Hún er nákvæm í yfirlestrinum og kom með gagnlegar ábendingar um bætt málfar og uppbyggingu setninga. Mér fannst frábært að vinna með henni og hún var mér ávallt innan handar ef ég hafði einhverjar spurningar eða lenti í vanda með töfluskrár o.fl. Ég mæli hiklaust með henni. 

Katrín Magnúsdóttir, janúar 2020.

Edda Laufey Laxdal, lögmaður:

Hólmfríður las yfir meistararitgerðina mína í lögfræði vorið 2016. Sem yfirlesari stóð hún sig einstaklega vel, hún skilaði alltaf af sér á umsaminni dagsetningu. Einnig voru útskýringar á betrumbættara orðalagi sem ég lærði mikið af. Hólmfríður er þægileg í samskiptum, fagmannleg og mæli ég hiklaust með henni sem yfirlesara!

Um mig

Um eiganda Íslenskuhornsins.

Stuðningskennsla

Ef þig vantar stuðning við íslenskunámið, smelltu hér.

Fyrir útlendinga

Vantar þig íslenskukennara fyrir maka, vin eða samstarfsfélaga? Smelltu hér.

Hafðu samband

Smelltu hér til að hafa samband og/eða panta tíma.
Powered by Create your own unique website with customizable templates.