Velkomin í Íslenskuhornið!
Komdu sæl(l)!
Ég heiti Hólmfríður Gestsdóttir, venjulega kölluð Hófí. Ég er íslenskufræðingur frá Háskóla Íslands og kenni íslensku fyrir útlendinga, bæði sjálfstætt og hjá Retor fræðslu. Á þessari síðu kynni ég þá þjónustu sem ég býð fram. Ég kenni nemendum íslensku, bæði í hópum og í einkatímum. Ég hef hjálpað fullorðnum útlendingum að læra íslensku frá árinu 2008 en einnig hjálpað tví- eða fjöltyngdum nemendum að styrkja sig í íslenskum orðaforða og lestri. Ég hef einnig tekið að mér stuðningskennslu í íslensku fyrir Íslendinga, t.d. tengt lesskilningi, málfræði og stafsetningu. Þá tek ég einnig að mér prófarkalestur, sjá hér. Ef einhverjar spurningar vakna, eða ef þig vantar kennslu í íslensku, hafðu þá endilega samband við mig með því að smella hér. |
Um migUm eiganda Íslenskuhornsins.
|
PrófarkalesturEf þig vantar vandaðan prófarkalestur, smelltu hér.
|
Fyrir útlendingaVantar þig íslenskukennara fyrir maka, vin eða samstarfsfélaga? Smelltu hér.
|
Hafðu sambandSmelltu hér til að hafa samband og/eða panta tíma.
|